Ábyrgð
Ábyrgð vegna galla er í samræmi við lög um neytendakaup (lög nr.48/2003) og lög um lausafjárkaup (lög nr.50/2000).
(nema annað sé tilgreint)
Gildir fyrir allar vörur (sjá takmarkanir)
- Ábyrgðarskírteini eða kaupnóta skilyrði
- Lítil raftæki sem eru talin gölluð á að framvísa á þjónustuborði verslana ELKO
- Stór raftæki sem eru talin gölluð þarf að tilkynna ELKO áður en tækin eru flutt úr stað
- Í sumum tilfellum getur ELKO vísað kaupanda beint á umboðsaðila á Íslandi sem tekur í öllum tilfellum styttri tíma
- ELKO áskilur sér rétt til að sannreyna galla innan eðlilegra tímamarka
- Ef raftæki reynist ekki gallað eftir athugun eða ekki er um að ræða ábyrgðarviðgerð greiðir kaupandi skoðunargjald í samræmi við verðskrá viðkomandi verkstæðis og/eða flutning ef við á.
- Ef til úrlausnar ábyrgðar kemur mun ELKO bjóða eftir atvikum viðskiptavini upp á viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa.
- Í öllum tilvikum er fyrst kannaður möguleiki á viðgerð
TAKMARKANIR:
- Ef um ræðir sölu til fyrirtækis þá er ábyrgð á galla 1 ár*
- Gildir ekki um eðlilegt slit vegna notkunar
- Gildir ekki ef tækið hefur verið opnað eða átt við það nema ELKO hafi yfirumsjón með eða hafi samþykkt verkið
- Gildir ekki ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar
- Gildir ekki um rafhlöður fartölva og farsíma. Rafhlöður eru rekstrarvara og eðlilegt getur verið að þurfi að endurnýja fyrir lok vélbúnaðarábyrgðar. Framleiðendur veita þó að lágmarki 6 mánaða ábyrgð.
Ef vara er keypt í ELKO Flugstöð Leifs Eiríkssonar
- Öll eftirkaupaþjónusta fer fram í verslunum ELKO á höfuðborgarsvæðinu.
- Takmarkanir og reglur falla undir hefðbundna ábyrgðarskilmála ELKO.
- Ábyrgðarskírteini eða tilvísun í kaupnótu skilyrði.
- Kaup í komuverslun ELKO Flugstöð er ekki hægt að skrá á kennitölu líkt og í öðrum verslunum ELKO. Því er ekki hægt að fletta upp eftir kennitölu ef keypt er í komuverslun og geyma þarf því kaupnótu.
- Ef kaupnóta er ekki fyrir hendi er hægt að senda nafn, dagsetningu kaupdag, greiðslumáta, upplýsingar um vöru á flugstod@elko.is til að athuga með úrlausn málsins.
- Ef umboðsaðili er á Íslandi er í mörgum tilfellum hægt að leita úrlausnar og eftirkaupaþjónustu þar.
- Ef vara er eingöngu til í fríhöfn getur ferlið tafist um 3-5 virka daga. Þó er markmiðið ávallt að klára málin í þeirri verslun sem leitað er til eins fljótt og auðið er.
Verkstæði og viðgerðir
- GILDIR FYRIR ALLAR VÖRUR
- Meðalviðgerðartími á Íslandi er 10‐15 virkir dagar. Viðgerð getur tekið allt að 20 virka daga
- Ekki er hægt að kanna stöðu á viðgerð þegar vara var sett í viðgerð innan 2 vikna.
- ELKO sendir allar vörur á viðurkennd verkstæði
- ELKO tekur ekki ábyrgð á gögnum tækisins sem eru á geymslueiningum s.s. á Flash minni eða hörðum diski
- Tækniþjónusta ELKO getur í sumum tilfellum tekið öryggisafrit af gögnum gegn vægu gjaldi. Ekki er hægt að ábyrgjast öryggisafrit vegna utanaðkomandi þátta s.s. vírusa, bilana o.s.frv.
- Við viðgerð geta komið upp ýmsar aðstæður, s.s. ef panta þarf varahluti eða viðgerð reynist umsvifameiri en áætlað var, því biður ELKO kaupanda um að sýna biðlund ef slíkt kemur upp.
- Til að stytta viðgerðartíma er kaupanda bent á að sumar vörur getur kaupandi farið með beint á verkstæði og því stytt viðgerðartímann um allt að 2‐4 daga. Framvísa þarf kaupnótu
- Þegar viðgerð er lokið er hringt í kaupanda eða sent sms og tilkynnt að varan sé tilbúin
- Framvísa þarf verkbeiðni við afhendingu tækis
- Allar fyrirspurnir varðandi vörur í viðgerð skulu berast á tölvupósti í viðkomandi verslun
- Elko Lindir þjónustuborð: upplysingar@elko.is
- Elko Skeifan þjónustuborð: skeifanupplysingar@elko.is
- Elko Grandi: grandi@elko.is
SKOÐUNARGJALD
Ef skoðun á tækinu leiðir í ljós að bilun sé ekki rakin til framleiðslugalla fellur skoðunargjald á eiganda tækisins í takt við verðskrá verkstæðis
Vörur keyptar í verslunum Elkjop Noregi eða Elgiganten DK/SE
ELKO reynir eftir fremsta megni að bjóða upp á fulla eftirkaupaþjónstu á vörum sem keyptar eru í verslunum Elkjop Noregi, Elgiganten DK/SE eða Gigantti Finlandi. ELKO er hinsvegar ekki ábyrgðaraðili á þessum vörum og þess vegna gæti eftirkaupaþjónusta í sumum tilfellum ekki verið í boði á Íslandi. Ef þú ert með vöru keypta í þessum verslunum og þarft á eftirkaupaþjónustu að halda, s.s. ábyrgðarmál eða viðgerð, sendu þá fyrirspurn til okkar í gegnum elko@elko.is og við munum þá skoða í kjölfarið hvort eftirkaupaþjónusta sé í boði á Íslandi og senda svar hið fyrsta. Framvísa þarf ábyrgðarskirteini.
ELKO viðbótartrygging
Tryggðu vöruna þína
ELKO býður upp á viðbótartryggingu fyrir vörur sem þú hefur valið.
Vara | Magn | Samtals | |
---|---|---|---|
|
X
|
|
|
Samtals |
Viðbótartrygging - Þín trygging ef óhapp verður
Viðbótartrygging
ELKO hefur hafið, í samstarfi við Moderna Försakringar AB, sölu á viðbótartryggingu á valdar vörur. Umsjónaraðili trygginganna hér á Íslandi er Tryggingamiðlun Íslands. Viðbótartrygging er trygging á nýja hluti umfram venjulega ábyrgðarskilmála. Viðbótartryggingin er tjónatrygging og bilanatrygging á tryggingatíma og gildir því einnig sem framlengdur ábyrgðatími. Tryggingin gildir um allan heim hefur gefið góða reynslu erlendis þar sem boðið hefur verið upp á hana um árabil.
- Trygging á nýja hluti
- Tjónatrygging og bilanatrygging
- Framlengdur ábyrgðartími
Tryggingin gildir fyrir óhöpp og bilanir sem að ekki falla undir ábyrgðarskilmála söluaðila en þó verður að sýna aðgætni. Ef að tækið hefur orðið fyrir tjóni og virkar ekki sem skyldi samkvæmt uppgefnum notkunarleiðbeiningum þá er haft samband við Tryggingarmiðlun Íslands í Síma 553-6688. Þetta á einnig við bilanir á tryggðu tæki ef að hefðbundin ábyrgð er útrunnin.