Um ELKO
ELKO stórmarkaður með raftæki
ELKO, stærsta raftækjaverslun landsins, opnaði þann 28. febrúar árið 1998 og varð strax frá upphafi leiðandi á sínu sviði á Íslandi. ELKO hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða þekkt vörumerki raftækja á lágu verði. ELKO rekur 5 verslanir með um 5000 m2 sölusvæði auk stórs vöruhúss. Hjá ELKO starfa um 135 manns. Verslanir ELKO eru í Lindum, Skeifunni, Granda, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Vefverslun ELKO.is.
Stærstir á Norðurlöndum
ELKO er með viðskiptasamning við stærstu raftækjakeðju Norðurlandanna (Elkjöp) Með þátttöku í þessari raftækjakeðju er stuðlað að lægsta raftækjaverði á Íslandi. Keðjan kaupir inn í miklu magni fyrir allar sínar verslanir og dreifir því síðan á milli verslana um alla Evrópu frá einum lager (80.000 m2) og stuðlar þannig að hagkvæmum innkaupum. ELKO á Íslandi er þar engin undantekning og fær sínar vörur sendar af risalagernum í Svíþjóð á viku fresti og er því ávallt með bestu merkin á lægsta mögulega verði. Þannig tryggjum við viðskiptavinum okkar lægsta verðið.
Tengsl við erlenda samstarfsaðila
Afar farsælt samstarf hefur verið síðan 1998 eða frá opnun ELKO við Elkjöp sem eins og fyrr hefur verið getið stærsta raftækjakeðja Norðurlanda með um 10.500 starfsmenn. Elkjöp er hins vegar í eigu breska raftækjarisans Dixons Carphone sem er öflugasta raftækjakeðja Evrópu og rekur u.þ.b. 1300 verslanir á Bretlandi og Írlandi og 300 verslanir í norður Evrópu.
Stærstir á Norðurlöndum
ELKO er með viðskiptasamning við stærstu raftækjakeðju Norðurlandanna (Elkjöp) Með þátttöku í þessari raftækjakeðju er stuðlað að lægsta raftækjaverði á Íslandi. Keðjan kaupir inn í miklu magni fyrir allar sínar verslanir og dreifir því síðan á milli verslana um alla Evrópu frá einum lager (95.000 m2) og stuðlar þannig að hagkvæmum innkaupum. ELKO á Íslandi er þar engin undantekning og fær sínar vörur sendar af risalagernum í Svíþjóð á viku fresti og er því ávallt með bestu merkin á lægsta mögulega verði. Þannig tryggjum við viðskiptavinum okkar lægsta verðið.
Eignarhald
ELKO ehf. er í 100% eigu Festi hf.
Stjórn ELKO ehf
Eggert Þór Kristófersson, stjórnarformaður
Ólafía Ingibjörg Þorvaldsdóttir, meðstjórnandi
Magnús kr. Ingason, meðstjórnandi
Framkvæmdastjóri ELKO ehf. er Gestur Hjaltason
Mannauðsstefna ELKO
Markmið ELKO er að vera fyrirmyndarvinnustaður þar sem áhersla er lögð á þjálfun, jafnrétti, heilsu og öryggi starfsfólks.
ELKO leggur áherslu á:
- að ráða og efla hæft starfsfólk sem hefur metnað til að ná árangri í starfi
- að laun séu sanngjörn og í samræmi við jafnlaunastaðal ÍST 85, ábyrgð og árangur í starfi
- að starfsfólk sé vel upplýst um starfsemi fyrirtækisins
- að jafnræðis sé gætt og tryggt sé að starfsfólki sé ekki mismunað vegna kyns, aldurs, uppruna, trúar eða annarra þátta
- að starfsfólk sýni frumkvæði og taki virkan þátt í að betrumbæta fyrirtækið
- að stuðla að góðri heilsu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs starfsfólks á opin og heiðarleg samskipti
- að öryggisstöðlum sé fylgt í hvívetna til að tryggja öryggi starfsfólks
Sjá nánar:
Störf í ELKO
Smelltu hér til þess að fara áfram á ráðningarvef ELKO.
ELKO viðbótartrygging
Tryggðu vöruna þína
ELKO býður upp á viðbótartryggingu fyrir vörur sem þú hefur valið.
Vara | Magn | Samtals | |
---|---|---|---|
|
X
|
|
|
Samtals |
Viðbótartrygging - Þín trygging ef óhapp verður
Viðbótartrygging
ELKO hefur hafið, í samstarfi við Moderna Försakringar AB, sölu á viðbótartryggingu á valdar vörur. Umsjónaraðili trygginganna hér á Íslandi er Tryggingamiðlun Íslands. Viðbótartrygging er trygging á nýja hluti umfram venjulega ábyrgðarskilmála. Viðbótartryggingin er tjónatrygging og bilanatrygging á tryggingatíma og gildir því einnig sem framlengdur ábyrgðatími. Tryggingin gildir um allan heim hefur gefið góða reynslu erlendis þar sem boðið hefur verið upp á hana um árabil.
- Trygging á nýja hluti
- Tjónatrygging og bilanatrygging
- Framlengdur ábyrgðartími
Tryggingin gildir fyrir óhöpp og bilanir sem að ekki falla undir ábyrgðarskilmála söluaðila en þó verður að sýna aðgætni. Ef að tækið hefur orðið fyrir tjóni og virkar ekki sem skyldi samkvæmt uppgefnum notkunarleiðbeiningum þá er haft samband við Tryggingarmiðlun Íslands í Síma 553-6688. Þetta á einnig við bilanir á tryggðu tæki ef að hefðbundin ábyrgð er útrunnin.